|
ENGLISH BELOW: Courage International og Bíó Paradís standa að sýningu heimildamyndarinnar NAZA sem vakið hefur mikla athygli víðsvegar um heim. Myndin byggir á samtölum við 24 uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á kerfisbundinn hátt á Gaza. Myndin vekur upp áleitnar spurningar um notkun gervigreindar í hernaði og viðhorf notenda hennar gagnvart mannfalli óbreyttra borgara. Óskarsverðlaunahafarnir og Ísraelarnir Yuval Abraham og Rachel Szorlaut (No Other Land) leikstýrðu myndinni en hún hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2026. Frá því að myndin kom út hefur Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hótað að svipta leikstjórana ríkisborgararétti og ísraelskir stjórnmálamenn ásakað þá um landráð og jafnvel hótað þeim ofbeldi. Alþjóðleg samtök um verndun blaðamanna kölluðu í kjölfarið eftir því að Ísrael verndaði rannsóknarblaðamennsku, en rétt er að nefna að Ísrael hefur myrt 247 fréttamenn á Gaza síðan árásir þeirra hófust í október 2023. Myndin verður sýnd í Bíó Paradís þann 21. október kl. 19 |
Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um myndina |
![]() |
|
Að lokinni myndinni verða panelumræður um efni myndarinnar og þau álitaefni sem hún vekur gagnvart notkun gervigreindar í hernaði og árásum Ísraela á óbreytta borgara á Gaza. Meðal panelista verður Emad Kiayei, meðstofnandi Consortium for AI and Existential Risk (AiXist) og Framkvæmdastjóri Middle East Treaty Organization (METO). Emad hefur unnið við rannsóknir og ráðgjöf við virta háskóla eins og Berkeley, Princeton og Columbia háskóla. Samtökin hans, AiXist rannsaka þær hættur sem felast í notkun gervigreindar með gereyðingarvopnum. Með honum í panel verða Kolfinna Tómasdóttir, meðstofnandi AiXist og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku & Palestínuverkefninu við Háskóla Íslands. Fundarstjóri verður Þórhildur Sunna Ævarsdóttir framkvæmdastjóri Courage International. ENGLISH: Courage International and Bio Paradis present the premiere of NAZA in Iceland: In secret conversations on the rooftops of Tel Aviv at night, the systems behind Israel’s calculated mass killing of Palestinian civilians in Gaza are revealed by the people who designed and operated them. Panel discussions with experts after the show Tickets and more info here: https://bioparadis.is/mynd/1027_naza/ |

